Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2024/25

Source: GlobeNewswire
Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2024/25

Hagar hf. birta uppgjör 2. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2024, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 17. október nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 18. október kl. 08:30 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.