Company Announcements

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD250225

Source: GlobeNewswire
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD250225

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, OLGERD250225 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 9,90% flötum vöxtum, en víxillinn verður skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a., c. og d.-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 29. ágúst nk.

Nánari upplýsingar veitir:

Jón Þorsteinn Oddleifsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs í síma 820-6491 eða jon.thorsteinn.oddleifsson@olgerdin.is