Company Announcements

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 20

Source: GlobeNewswire
SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 20

Í 20. viku 2026 keypti Skagi 4.600.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 84.525.000 eins og hér segir:

VikaDagsTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
Vika 2011.5.202609:501.150.00018,4521.217.50037.300.000
Vika 2012.5.202610:061.150.00018,3521.102.50038.450.000
Vika 2013.5.202610:161.150.00018,4021.160.00039.600.000
Vika 2015.5.202609:341.150.00018,3021.045.00040.750.000
Samtals  4.600.000 84.525.000 


Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 2. mars 2026, sbr. tilkynningu á markað 23. febrúar 2026. Áætlað er að kaupa allt að 40 milljón eigin hluti sem jafngildir um 2,06% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals kr. 750 milljónir króna að kaupverði. Endurkaup munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en við lokun markaða 5. júní 2026.

Skagi hefur nú keypt samtals 30.417.312 eigin hluti í félaginu að kaupverði kr. 545.148.638 og á nú samtals 40.750.000 eigin hluti eða 2,1% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.940.311.770.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.

Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á fjarfestatengsl@skagi.is