Eimskip og Faroe Ship hefur borist tilkynning um verkfallsboðun frá Sjómannafélagi Íslands (SÍ) þar sem boðað er ótímabundið verkfall bátsmanna og háseta á eigin skipum félagsins, þ.e. Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi frá kl. 12:00 mánudaginn 25. maí, náist samningar ekki fyrir þann tíma.
Samkomulag við félagsmenn SÍ á skipum félagsins rann út um síðustu áramót. Hefur samkomulagið tekið breytingum á gildistíma í takt við umsamdar launabreytingar á almennum vinnumarkaði, eða svokölluðum stöðugleikasamningi, auk þeirra viðbótar hækkana sem gerðar voru sérstaklega fyrir viðkomandi störf.
SÍ hafði áður boðað tímabundið verkfall 12.-15. apríl á eigin skipum félagsins en aflýsti því verkfalli þann 8. apríl síðastliðinn.
Þá var tímabundnu verkfalli vegna hafnarverkafólks sem boðað var þann 13. apríl frestað til tímabilsins 26.-28. maí og stendur sú boðun enn.
Samningaviðræður hafa verið í gangi á milli Samtaka atvinnulífsins, Eimskips og SÍ hjá ríkissáttasemjara þar sem tillögur hafa verið lagðar fram og er það von Eimskips að samningar náist án þess að komi til boðaðra aðgerða.
Komi til verkfalls hafnarverkamanna í SÍ mun það draga úr afköstum í Sundahöfn á meðan á því stendur þar sem um 40% starfsfólks í hafnarvinnu er í SÍ. Komi til verkfalls á eigin skipum félagsins mun það hafa áhrif á siglingaáætlun og skerða þjónustu. Starfsfólk félagsins leitar allra leiða til að takmarka áhrif hugsanlegra verkfalla á þjónustu við viðskiptavini.
Viðskiptavinum verður haldið upplýstum um stöðuna eftir því sem málum vindur fram.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 7379, netfang harpa@eimskip.com.